Vorverkefni 2010
28.05.2010 16:08:04 / vorklutar

Dagur 10

09:45 - Björk og Berglind komu til Þórhönnu. Unnum með myndirnar í tölvunni.
11:00 - Fórum í skólann og fengum okkur að borða.
11:20 - Fórum aftur heim til Þórhönnu og héldum áfram;)
12:00 - Mamma Þórhönnu kom með möppu fyrir okkur úr vinnunni til að setja myndirnar í:d
12:01 - Prentuðum myndirnar og viðtalið út og fl.
12:30 - Fórum út og tókum nokkrar myndir af okkur til að setja í möppuna.
12:40 - Unnum með þær í tölvunni og settum verð á klútana.
13: 30 - Settum myndirnar inn í tölvuna og prentuðum þær út ásamt verðinu á klútunum.
14:00 - Settum möppuna saman:d
14:30 - Fórum uppí skóla og skiluðum verkefninu:haha:
14:40 - Héldum allar heim á leið eftir afkastamikinn dag:haha:

Afrakstur dagsins: Kláruðum möppuna og skiluðum verkefninu=VERKEFNIÐ ER
BÚÚÚIIIIÐ:!::!::!::!::haha::haha::d:haha:

-Berglind, Björk og Þórhanna:d

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2010 18:48:22 / vorklutar

Dagur 9

9:30 - Mættum í skólann og fengum lyklana hjá Elínu. Tókum nokkrar myndir af klútunum sem við hættum samt við að nota. Biðum svo í smá stund eftir módelunum okkar:d (Brynju og Unnbjörgu)
10:00 - Brynja og Unnbjörg komu og við fórum út í sólina og tókum myndir af stelpunum með klútana;)
11:00 - Fengum okkur að borða ómótstæðilega ljúffenga langloku með dýrindis osti og safaríkri skinku og drukkum svalandi svala með:d:d
11:20 - Tókum myndir bara af klútunum inní saumastofunni.
12:00 - Þórhanna fór heim til sín en Björk og Berglind fóru heim til sín að skipta um skó og Björk sótti snúru fyrir myndavélina til að hlaða myndunum inn í tölvuna hjá Þórhönnu.
12:45 - Bjögga og Begga fóru heim til Þobbu og hlóðu myndunum inn í tölvuna. Síðan unnum við hörðum höndum með myndirnar í tölvunni. Þurftum reyndar að fara út til að taka nokkrar nýjar myndir því að hinar voru ekki nógu góðar en það var ekkert stórmál;) Síðan héldum við bara áfram að vinna með myndirnar og settum þær upp í tölvunni eins og við ætlum að prenta þær út. Prófuðum að prenta eina mynd og það heppnaðist bara vel:d
15:40 - Berglind og Björk fóru svangar heim eftir mjög langan og vinnusaman dag:!:

Afrakstur dagsins: Tókum allar myndir sem við þurftum að taka og unnum með þær í tölvunni.

-Berglind, Björk og Þórhanna8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2010 14:18:05 / vorklutar

Dagur 8

9:30 - Björk og Berglind biðu í smá stund í skólanum eftir Þórhönnu af því að hún svaf yfir sig.
9:50 - Þórhanna mætt, hress og kát að vanda með klútana og við hófumst handa :d (rímar ;))
12:00 - Elín kom í saumastofuna til okkar og gægðist á afraksturinn (klútana) og kom með nokkur góð ráð varðandi fráganginn :) Svo héldum við áfram að klára klútana.
13:10 - Lögðum lokahönd á seinustu klútana. Má segja þessari kútagerð formlega lokið :haha:
13:11 - Rúlluðum okkur uppá bókó og blogguðum
13:12 - Settum saman viðtalið sem við tókum við Kötlu í Volcano Design ;)
14:20 - Héldum heim á leið úrvinda og að deyja úr hungri, þar sem við misstum af matnum því það var búið að færa hann til kl.11 og enginn sagði okkur það:evil:

Stefnuskrá dagsins: Ljúka við klútana; Mission accomplished :haha: :haha: :haha:

-BBJ, BS og ÞIÓ:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2010 14:13:12 / vorklutar

Dagur 7

9:30 - Mættum í skólann og fengum strætómiða hjá Elínu ;)
10:07 - Hoppuðum í strætó nr 15 og héldum á vit ævintýranna niður á Skúlagötu 63.
10:16 - Tókum "viðtal" við Kötlu Hreiðarsdóttur sem á Volcano design. Spjölluðum við hana og hún sýndi okkur staðinn þar sem hún vinnur á og svo smelltum við einni mynd af henni :d
10:45 - Nýttum okkur góða veðrið og röltum niður Laugarveginn með bros á vör og marglituð sólgleraugu fyrir augum 8)  Skoðuðum í búðir m.a. Volcano Design búðina ;) Berglind keypti 2 sólgleraugu 8)8), Björk keypti 1 stykki sólgleraugu 8) og 2 eyrnalokka og Þórhanna keypti sér afarstórfenglegann blómahring :d
12:19 - Hoppuðum í strætó.
12:25 - Hoppuðum úr strætó.
12:34 - Hoppuðum í strætó á ný. Smám saman fylltist hann af trylltum mannskap og þar varð rífandi stemmning, ekki að undra, þar sem meðalaldurinn var a.m.k. 65 ára 8) Í þannig félagsskapi líður okkur líka best :haha:
13:11 - Hoppuðum enn á ný úr strætó og gæddum okkur á gómsætum Vesturbæjarís :haha:
13:22 - Héldum á leið uppí skóla og komum uppá bókasafn og blogguðum um þennan yndislega veðurgóða dag :d

-Berglind baldursBrá, Björk gleymérey og Þórhanna fíflInga :):lol:8):d;):!::klikk::haha::p

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2010 14:21:24 / vorklutar

AUKADAGUR!

11:30 - Björk og Berglind komu til Þórhönnu og við byrjuðum að sauma og fleira.
12:00 - Fengum okkur að borða ljúffengann hádegismat sem að mamma Þórhönnu útbjó:d (borðuðum úti í hinu dásamlega veðri8))
12:15 - Héldum áfram með verkefnið.
14:20 - Björk og Berglind fóru heim;)

Viljum taka það fram að það var 22°C hiti (í skugga) og ennþá meiri í sólinni!!!! OG við vorum inni að sauma á FRÍDEGI!!!!8|

Afrakstur: Kláruðum nokkra klúta sem voru ekki alveg tilbúnir og sömdum spurningar fyrir viðtalið á morgun;)

Sumarkveðjur- Begga Beip;), Batta cool8) og Þobba þönder:klikk:

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2010 20:11:57 / vorklutar

Dagur 6

10:00 - B&B mættu til Þórhönnu og við byrjuðum strax að sauma.
11:50 - fórum upp í skóla að fá okkur í gogginn, í matinn var dýrindis kjúklingasnitsel sem við snæddum af bestu lyst :d.
12:25 - Óli kennari fylgdi okkur út í saumastofu þar sem við saumuðum smá og gerðum nokkrar tilraunir til að "óverlokka" nokkra klúta en það tókst ekki nógu vel:$.
13:00 - fórum í myndatöku fyrir annað vorverkefni.
13:15 - fórum aftur út í saumastofu dunduðum okkur þar í smá stund og tókum svo saman dótið okkar og héldum af stað til Þórhönnu á ný:p.
13:45 - komum heim til þórhönnu og unnum í klútunum.
15:30 - B&B héldu heim á leið glaðar í bragði eftir góðan (veður)dag :haha:8)

afrakstur: nokkrar góðar hugmyndir, 2 fullkláraðir klútar og nokkrir ókláraðir klútar.

-B,B und Þ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2010 19:49:43 / vorklutar

Dagur 5

10:00 - Berglind og Björk komu heim til Þórhönnu. Berglind kláraði að sauma einn klút og Þórhanna og Björk voru í þungum þönkum á meðan, um hvernig klút við ættum að gera næst:d
11:30 - Þórhanna fattaði að hún þurfti að fara í ökutíma eftir 10 min og á sömu sekúntum missti Berglind tönn:lol::lol::lol: Björk og Berglind fóru í skólann og fengu sér afbragðs góða en næstum hráa hamborgara í matinn og hlustuðu á awesome krakka í 9.bekk syngja og spila:)
12:30 - Björk og Berglind fóru í Virku og keyptu efni í klúta og svona blúndu eða e'ð þannig til að festa á:) 
13:20 - B-in tvö skutust heim til Þórhönnu og við byrjuðum á einum klút úr efninu sem við keyptum;)
15:00 - Tjilluðum aðeins í slökun heima hjá Þórhönnu í léttu spjalli8)
16:10 - Bjögga og Begga héldu sína leið heim eftir skemmtilegan og frekar rólegan dag:d

-Berglind Brá:), Björk8) og Þórhanna Inga:d

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2010 14:47:08 / vorklutar

Dagur 4

08:55 - mættum og hófumst handa.
11:20 - fórum út í skóla í myndatöku og svo í mat þar sem var í boði alls kyns góðgæti nánar tiltekið grjónagrautur, kanilsykur og lyfrapylsa.
12:15 - komum aftur í gömlu góðu textílmenntastofuna og unnum hörðum höndum til......
15:15 - og þá fórum við heim uppgefnar á líkama og sál eftir erfiðan dag.

Afrakstur: Heklaðar kúlur til að setja á klút, héldum áfram með klútana sem voru ekki kláraðir og kláruðum einn klút.


-Berglind Brá:d, Björk:haha: og Þórhanna Inga:lol:.

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.05.2010 15:07:17 / vorklutar

Dagur 3

09:00 - Mættum í skólann og fengum lyklana hjá Elínu. Fórum í fatasaum og hófumst handa;) Nörtuðum inná milli í oreo smákökur sem við bökuðum í gær heima hjá Berglindi:d
12:00 - Fengum okkur dýrindis kjötbollur í matinn:lol:
12:15 - Fórum í myndatöku fyrir árbókina8)
12:25 - Héldum áfram harðri vinnu í klútagerð.
15:15 - Gengum frá, blogguðum og fórum heim;)

Afrakstur dagsins: Kláruðum klút sem við byrjuðum á í gær. Bjuggum til nýjan klút sem við kláruðum samt ekki alveg en gerðum klút úr afgangs efninu af honum. Þórhanna byrjaði að hekla kúlur sem við ætlum að nota sem skraut á klút/a:p

Berglind Brá, Björk & 
Þórhanna Inga

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 14:14:27 / vorklutar

Dagur 2

Annar dagur vorverkefnavinnu:d
10:15 - Mættum í stofu 10 og ræddum við Elínu um daginn og komandi daga;)
10:30 - Löbbuðum heim til Þórhönnu og sóttum efni sem við vorum búnar að taka til og tókum nokkra klúta með til innblástrar:d
10:45 - Fórum inn í fatasaum og hófumst handa.
12:00 - Fengum okkur að borða ljúffengan fisk í mötuneyti skólans.
12:15 - Héldum áfram með klúta sem að við vorum byrjaðar á.
14:30 - Gengum frá og fórum heim.

Afrakstur dagsins: Einn fullgerður klútur og margar hugmyndir:d Vorum með annan en hann heppnaðist ekki nógu vel:$ Mætum hressar og kátar í fyrramálið:d

Berglind Brá, Björk & Þórhanna Inga

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 11:14:08 / vorklutar

Föstudagsblogg á Mánudegi

Þetta blogg kemur 3 dögum of seint af því að við gleymdum að blogga á föstudagi:s Þess vegna ætlum við að segja frá föstudeginum í dag.
09:00 - Mættum í skólann og hlustuðum á Jón Pétur útskýra vorverkefnin á sal.
10:35 - Fórum og hittum Elínu sem hefur umsjón með hópnum okkar og fylltum út blað (skrifuðum undir samning :d) þar sem við sögðum frá ætlunum okkar og markmiðum.

Markmið: Að hanna og sauma nokkra klúta og e.t.v. nokkra fylgihluti og hitta og taka viðtal/töl við starfandi hönnuð/i.

Afrakstur: Nokkrir fullgerðir klútar og e.t.v. fylgihlutir og myndir af þeim.

Berglind Brá, Björk & Þórhanna Inga

» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 1687
Gamalt blogg